Quantcast
Channel: Sauðárkrókur
Browsing all 7005 articles
Browse latest View live

Meistari í ferðamálafræði frá Hólum

Háskólinn að Hólum í Hjaltadal hefur nýútskrifað nemanda í meistaranámi í Ferðamálafræði við Háskólann að Hólum. Er það aðeins í annað sinni í sögu ferðamáladeildarinnar. Nemandinn heitir Áskell Heiðar...

View Article


Ljóðahátíðin Haustglæður í Fjallabyggð

Ljóðahátíðin Haustglæður, áður Glóð, er hafin og sem fyrr eru það Ljóðasetur Íslands og Ungmennafélagið Glói sem standa að hátíðinni í sameiningu í Fjallabyggð. Hátíðin samanstendur af nokkrum...

View Article


Tjölduðu í Héðinsfirði í október

Nemendur í Menntaskólanum á Tröllaskaga í Ólafsfirði tjölduðu um síðustu helgi í Héðinsfirði við gamla slysavarnarskálann. Nemendur þessir eru í fjallamennsku- og útivistaráföngum í MTR og leggja...

View Article

Akureyri með nýtt lið í Útsvari

Nýtt lið tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari á Rúv fyrir hönd Akureyrar, en Akureyrarstofa hefur valið úr ábendingum sem þeim bárust. Í nýja liðinu eru Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og...

View Article

Brúðkaup frumsýnt í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar mun heimsfrumsýna gamanleikinn “Brúðkaup“, sem saminn og leikstýrður er af Guðmundi Ólafssyni, föstudaginn, 17. október í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Önnur sýning...

View Article


Vilja fækka um stöðugildi hjá sýsluskrifstofunni í Fjallabyggð

Sýslumaðurinn á Húsavík, Svavar Pálsson hefur upplýst bæjarstjórn og bæjarstjóra Fjallabyggðar að ætlunin sé að fækka um eitt stöðugildi á sýsluskrifstofunni á Siglufirði, í kjölfar umdæmisbreytinga og...

View Article

Aðalfundur Bridgefélags Siglufjarðar

Aðalfundur Bridgefélags Siglufjarðar og vetrarstarf hefst mánudaginn 20. október kl. 19:30 í húsi Björgunarsveitarinnar Stráka við Tjarnargötu á Siglufirði. Spilaður verður tvímenningur að loknum fundi.

View Article

Þórarinn Hannesson með nýjan útvarpsþátt

Þórarinn Hanesson, forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands og skáld mun byrja með nýjan útvarpsþátt á Útvarpi Trölla FM 103,7, sunnudaginn 19. október. Þátturinn heitir Þema þáttur Þórarins og er á dagskrá...

View Article


Malbikunarframkvæmdir við kirkjugarðinn á Siglufirði

Nú standa yfir framkvæmdir við kirkjugarðinn á Siglufirði en unnið er að því að malbika aðkomuna að garðinum. Framkvæmdirnar hófust fyrst árið 2012 þegar að fyrsti áfanginn byrjaði að þessum framkvæmdum.

View Article


Gamli malarvöllurinn á Siglufirði 70 ára

Gamli malarvöllurinn á Siglufirði er nú orðinn grasi gróinn. Þann 17. júní árið 1944 var Knattspyrnufélagi Siglufjarðar afhentur völlurinn sem stendur við Túngötu á Siglufirði. Völlurinn var í notkun...

View Article

33 atvinnulausir í Fjallabyggð

Í lok septembermánaðar voru 33 atvinnulausir í Fjallabyggð,  þar af voru 11 karlar og 22 konur. Engin breyting var frá ágústmánuði í þessum tölum. Í Dalvíkurbyggð eru 24 atvinnulausir, þar af 11 karlar...

View Article

Stefna að opnun skíðasvæðis á Siglufirði 22. nóvember

Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði laugardaginn 22. nóvember næstkomandi ef aðstæður leyfa. Annars verður formleg opnun svæðisins frá 1. desember og til 1. maí 2015, en...

View Article

Golfmót til styrktar vefmyndavélinni í Ólafsfirði

Um helgina var haldið golfmót hjá Golfklúbbi Ólafsfjarðar á Skeggjabrekkuvelli, en mótið var til styrkar vefmyndavélinni í Ólafsfirði. Úrslitin urðu eftirfarandi: Staða Kylfingur Klúbbur Högg Punktar 1...

View Article


Klipparinn vinsæli á Siglufirði

Jón Hrólfur Baldursson sem rekur Hrímnir Hár- og skeggstofuna á Siglufirði er duglegur að taka upp skemmtilegar myndbandsklippur frá Siglufirði og heldur hann úti síðu á Youtube undir nafninu Rebel...

View Article

Siglfirðingaball fyrsta vetrardag

Siglfirðingafélagið stendur fyrir balli á veitingastaðnum Ránni í Reykjanesbæ, laugardaginn 25. október frá 22:00 til 02:00. Stúlli og Danni spila.

View Article


Opið á Kaffi Klöru um næstu helgi

Búið er að tilkynna að eina kaffihúsið í Ólafsfirði verður opið um næstu helgi, Kaffi Klara opnar laugardaginn 25. október og sunnudaginn 26. október, frá klukkan 13-17. Þá verður hægt að sjá...

View Article

Ljósmynda- og kvikmyndasýning Binna á Ólafsfirði

Þann 26. október næstkomandi verða liðin 100 ár frá fæðingu Brynjólfs Sveinssonar, sem var kaupmaður og stöðvarstjóri Pósts og síma í Ólafsfirði. Myndir hans hafa aldrei verið sýndar opinberlega, en...

View Article


Frumraun Þórarins í útvarpi

Skáldið og forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands,  Þórarinn Hannesson, var með sinn fyrsta útvarpsþátt á Trölla, en stöðin sendir út frá Siglufirði. Þátturinn Þema-þáttur Þórarins, eða 3xÞ er nú...

View Article

Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð

Tilkynning frá Grunnskóla Fjallabyggðar: Skólaakstur fellur niður í dag vegna óveðurs eða ófærðar. Kennsla 5.-10.bekkjar fer fram í starfstöðvum skólans samkvæmt óveðursskipulagi. Nemendur sem búsettir...

View Article

Kennsla fellur niður í Menntaskólanum á Tröllaskaga

Skólaakstur frá Siglufirði og Dalvík fellur niður vegna óveðurs og ófærða. Kennsla fellur því niður í Menntaskólanum á Tröllaskaga í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu mtr.is

View Article
Browsing all 7005 articles
Browse latest View live