Klukkan 17:43 var tilkynnt um árekstur með dráttarvél og fólksbifreið skammt norðan við brúnna yfir Hörgá. Þar urðu slys á tveimur aðilum og báðir fluttir á sjúkrahús með sjúkrabifreið og líðan sögð eftir atvikum. Ekki kom til vegalokanna vegna þessa slyss. Rannsókn lögreglu stendur yfir á tildrögum slyssins.
↧