Í dag fer fram hið árlega Skarðsrennsli á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Leiðin er um 3 km frá Illviðrishnjúk að skíðaskálanum. Keppnin hefst kl. 13:00 og eru verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin. Skíðasvæðið sjálft er opið í dag frá kl. 11-16 en lokadagur er á morgun sunnudag.
↧