Undanfarið hefur staðið yfir vinna við endurskoðun á leiðakerfi og tímaáætlun Strætisvagna Akureyrar. Af því tilefni hefur verið boðað til opins fundar í Hofi menningarhúsi á Akureyri, mánudaginn 2. maí kl. 17:00. Allir eru velkomnir og hagsmunaaðilar eru sérstaklega hvattir til að mæta. Einnig er hægt að senda ábendingar á netfangið sva@akureyri.is.
↧